Fotbolti.net
31.08.06 - 17:59
Hafliði Breiðfjörð

Shabani Nonda til Blackburn (Staðfest)

Shabani Nonda í leik með Monaco gegn Chelsea.

Shabani Nonda í leik með Monaco gegn Chelsea.

Canon

Mynd: Getty Images

Blackburn Rovers hafa fengið Shabani Nonda framherja AS Roma að láni út tímabilið en að því loknu eiga þeir möguleika á að kaupa leikmanninn sem er 29 ára gamall landsliðsmaður Kongo.
Nonda hóf feril sinn með FC Zurich í Sviss þar sem hann vakti strax mikla athygli og skoraði 24 mörk á tímabilinu 1996-1997. Í kjölfarið var hann seldur til Rennes í Frakklandi þar sem hann skoraði að meðaltali mark í öðrum hvorum leik á tveggja ára tímabili. Þá keypti Monaco hann á 15 milljónir punda í júlí 2000.

Hann var besti leikmaður Frakklands tímabilið 2002-2003 og skoraði þá 26 mörk í 35 leikjum. Í úrslitaleik Meistaradeildarinnar kom hann inná sem varamaður þar sem hann mætti Benni McCarthy og félögum í Porto en McCarthy mun leik við hlið hans hjá Blackburn.

Árið 2005 fór hann á frjálsri sölu til Roma en var mikið meiddur. Samt náði hann að skora átta mörk í 22 leikjum á síðustu leiktíð og er nú lánaður til Blackburn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.