31.08.06 - 20:07
Hafliði Breiðfjörð
Ze Roberto til Santos (Staðfest)

Ze Roberto.

Mynd: Getty Images

Ze Roberto.

Mynd: Getty Images
Brasilíska félagið Santos tilkynnti í dag að þeir hafi samið við brasilíska miðjumanninn Ze Roberto en samningurinn gildir fram í júlí 2007. Ze Roberto var í HM hópi Brasilíumanna í Þýskalandi í sumar og árið 1998 í Frakklandi.
Hann var orðinn félagslaus eftir að hafa ekki framlengt samning sinn við Bayern Munchen í Þýskalandi í maí. Hann er 32 ára gamall og verður formlega kynntur fyrir stuðningsmönnum Santos á morgun.
Nokkur félög Brasilíu vildu næla í Ze Roberto en auk Santos höfðu meðal annars Corinthians og Sao Paulo áhuga. Hann var eini leikmaður Brasilíu í stjörnuliði Heimsmeistaramótsins sem FIFA valdi. Hann skoraði mark í 3-0 sigri Brasilíu á Ghana í annarri umferð mótsins.