31.08.06 - 20:26
Hafliði Breiðfjörð
Angelos Charisteas til Feyenoord (Staðfest)

Angelos Charisteas.

Mynd: Getty Images

Angelos Charisteas.

Mynd: Getty Images
Feyenoord keyptu í dag gríska framherjann Angelos Charisteas frá Ajax en talið er að kaupverðið hafi numið 2,5 milljónum evra. Hann er fyrsti leikmaðurinn sem fer milli þessara erkifénda í 14 ár.
Charisteas sem er 26 ára gamall skoraði sigurmarkið á Evrópumótinu í Portúgal sumarið 2004 í úrslitaleiknum gegn heimamönnum í Portúgal. Hann gerir þriggja ára samning við Feyenoord.
Hann hætti hjá Werder Bremen og fór til Ajax í janúar 2005 en vann sér aldrei sæti í byrjunarliði Ajax. Hann skoraði þó 10 mörk í 31 leik.
Hann hætti hjá Werder Bremen og fór til Ajax í janúar 2005 en vann sér aldrei sæti í byrjunarliði Ajax. Hann skoraði þó 10 mörk í 31 leik.
