Fotbolti.net
31.08.06 - 20:57
Hafliði Breiðfjörð

Douala til Porstmouth (Staðfest)

Roudolphe Mbela Douala í leik með Sporting Lisabon.

Roudolphe Mbela Douala í leik með Sporting Lisabon.

Canon

Mynd: Getty Images

Kaupæði Portsmouth heldur áfram því nú í kvöld fengu þeir í sínar raðir þriðja leikmanninn í dag, og þann tíunda sem kemur til liðs við þá í sumar. Þetta er Roudolphe Mbela Douala landsliðsmaður Kamerún sem kemur á láni frá Sporting Lisabon í Portúgal út tímabilið.
Að tímabilinu loknu á hann kost á að gera félagaskiptin endanleg. Hann hafði áður verið orðaður við Middlesbrough sem reyndu að næla í hann í fyrra. Fyrr í sumar reyndu Boro aftur og svo virtist sem búið væri að semja um 2 milljón punda kaupverð þegar leikmaðurinn hafnaði skiptunum.

Hann er hinsvegar kominn í ensku úrvalsdeildina núna eftir að hafa tekið tilboði frá Portsmouth.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.