Fotbolti.net
31.08.06 - 21:49
Magnús Már Einarsson

Cotterill til Wigan (Staðfest)

Cotterill í landsleik með Wales.

Cotterill í landsleik með Wales.

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur fengið David Cotterill framherja Bristol City fyrir um það bil tvær milljónir punda en þetta staðfesti úrvalsdeildarfélagið nú rétt í þessu.
Cotterill er átján ára landsliðsmaður frá Wales en Paul Jewell stjóri Wigan var ánægður með að fá hann. ,,Hann er leikmaður sem við höfum verið að skoða í nokkurn tíma og við höfum ákveðið að hefjast handa núna."

,,David er einn af þessum leikmönnum sem þú heldur að hafa hæfileikana til að gera það gott í úrvalsdeildina sem er ástæða þess að við ákváðum að taka hann. Hann er mjög snöggur en hann er einnig mjög þyrstur í að læra og hefur gott viðmót,"
sagði Jewell við heimasíðu Wigan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.