Fotbolti.net
31.08.06 - 22:30
Hörður Snævar Jónsson

Miller og Connolly til Sunderland (Staðfest)

Miller mun ekki klæðast treyju United aftur.

Miller mun ekki klæðast treyju United aftur.

Canon

Mynd: Getty Images

Enn einn leikmaðurinn er gengin til liðs við Roy Keane og lærisveina hans hjá Sunderland. Fyrrum samherji Keane hjá Manchester United, Liam Miller hefur gengið til liðs við félagið án greiðslu og er samningur hans til þriggja ára. Þá gekk annar írskur leikmaður til liðs við Sunderland David Connoly frá Wigan.
Keane var ráðinn stjóri Sunderland á þriðjudag og hefur á þeim stutta tíma fengið til liðs við sig þá, Dwight Yorke, Liam Miller, Graham Kavanagh, Ross Wallace, Stanislav Varga og David Connoly.

Miller lék 22 leiki fyrir Manchester á þeim tíma sem hann var hjá félaginu en á síðasta tímabili fór hann á láni til Leeds og lék með þeim 33 leiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.