Fotbolti.net
31.08.06 - 23:13
Magnús Már Einarsson

Todorov lánaður til Wigan (Staðfest)

Todorov fagnar marki sínu gegn Middlesbrough á mánudaginn.

Todorov fagnar marki sínu gegn Middlesbrough á mánudaginn.

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan Athletic hefur nokkuð óvænt fengið Svetoslav Todorov framherja Portsmouth á láni út tímabilið en hann hefur skorað tvö mörk í fyrstu þremur leikjum síðarnefnda liðsins á tímabilinu.
Eftir komu Andy Cole til Portsmouth í dag leyfði Harry Redknapp, Todorov hins vegar að fara og er hann þriðji leikmaðurinn sem Wigan fær í dag á eftir David Cotterill og Kevin Kilbane.

Todorov sem varð 28 ára í gær er landsliðsmaður frá Búlgaríu en hann er ellefti leikmaðurinn sem Wigan fær í sumar. ,,Allir vita um Wigan núna og hversu metnaðarfullir þeir er. Allt sem ég vil gera er að spila og gæði hópsins segja sig sjálf. Harri Redknapp sagði að ég og Paul Jewell myndum ná vel saman því hann þekkir hann vel og ég mig hlakkar til áskoruninnar sem er framundan," sagði Todorov.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.