31.08.07 - 06:00
Stefán Guðberg Sigurjónsson
Arouna Kone til Sevilla (Staðfest)

Kone í leik með PSV Eindhoven gegn Arsenal. Hann mun einmitt mæta Arsenal í Meistaradeildinni með Sevilla komist þeir áfram úr undankeppninni.

Mynd: Getty Images

Sevilla hefur gengið frá kaupum á sóknarmanninum Arouna Kone frá PSV Eindhoven, standist hann læknisskoðun hjá spænska félaginu.
Þessi 23. ára gamli leikmaður hefur samþykkt fimm ára samning en ekkki hefur verið greint frá því hversu mikið þeir þurfa að borga fyrir þennan landsliðsmann Fílabeinsstrandarinnar.
,,Þetta er mjög góður samningur fyrir PSV. Hann er frábær leikmaður en þetta var mjög gott tilboð og við verðum að gæta hagsmuna PSV til lengri tíma litið,” sagði Jan Reker, framkvæmdarstjóri PSV.
Kone hefur skorað 21 mark í 53 leikjum fyrir hollensku meistarana og mun hafa klásúlu í samningnum sínum við Sevilla að hann geti farið frá félaginu verði boðið í hann 20 milljónir punda.

Heimild: Sporting Life