31.08.07 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Danny Mills til Charlton á láni (Staðfest)

Danny Mills í ryskingum.

Mynd: Getty Images

Danny Mills í ryskingum.

Mynd: Getty Images
Charlton Athletic hefur fengið varnarmanninn Danny Mills að láni frá Manchester City.
Þessi þrítugi leikmaður er ekki í plönum Sven Goran Eriksson hjá Manchester City og nú hefur hann fengið að fara til Charlton en þar þekkir hann ágætlega til.
Mills lék í fimmtán mánuði með Charlton frá mars 1998 þar til í júní 1999 áður en hann fór til Leeds.
,,Ástæðan fyrir því að við fengum Danny Mills til félagsins er sú að við teljum okkur vanta skipulag baka til á köflum, smá reynslu. Við þurftum einnig einhvern sem að veit um hvað deildin snýst um," sagði Alan Pardew stjóri Charlton.

Heimild: Sky