Fotbolti.net
31.08.07 - 10:20
Magnús Már Einarsson

Dejan Stefanovic til Fulham (Staðfest)

Dejan Stefanovic tæklar Joe Cole.

Dejan Stefanovic tæklar Joe Cole.

Canon

Mynd: Getty Images

Fulham hefur keypt varnarmanninn Dejan Stefanovic frá Portsmouth. Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir tveggja ára samning við Fulham en kaupverðið er ein milljón punda.
,,Dejan er sterkur varnarmaður með reynslu bæði með félags og landsliðum. Hann les leikinn vel, er hugrakkur og veit hvernig hraðinn og styrkurinn er í ensku úrvalsdeildinni þannig að ég efa ekki að hann mun styrkja okkur," sagði Lawrie Sanchez stjóri Fulham.

,,Þetta hefur verið svekkjandi byrjun á tímabilinu hjá okkur hvað úrslit varðar en ég er vongóður um að við höfum hóp leikmanna sem geti farið og gert góða hluti," bætti Sanchez við.

Stefanovic kom til Portsmouth frá Vitesse Arnhem í júlí 2003 og var meðal annars fyrirliði hjá liði Harry Redknapp um tíma.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.