31.08.07 - 10:30
Magnús Már Einarsson
Glen Johnson til Portsmouth (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portsmouth hefur gengið frá kaupum á Glen Johnson hægri bakverði Chelsea en kaupverðið er talið vera í kringum fjórar milljónir punda.
Johnson sem er 23 ára þekkir ágætlega til hjá Portsmouth því hann var í láni hjá liðinu á síðustu leiktíð.
Johnson kom til Chelsea frá West Ham á sex milljónir punda í júlí 2003 og var fyrsti leikmaðurinn sem kom til félagsins eftir að Roman Abramovich keypti það. Johnson fékk hins vegar fá tækifæri hjá Chelsea og nú hefur hann gengið til liðs við Portsmouth.
Á ferinum hefur Johnson leikið fimm landsleiki með Englendingum en fyrsti landsleikur hans var gegn Danmörku 2003.

Heimild: BBC