Fotbolti.net
31.08.07 - 12:54
Hörður Snævar Jónsson

Sam Sodje á láni til Charlton (Staðfest)

Sam Sodje í leik með Reading.

Sam Sodje í leik með Reading.

Canon

Mynd: Getty Images

Sam Sodje leikmaður Reading hefur verið lánaður til Charlton. Charlton féll úr úrvaldsdeildinni í vor.
Sodje hefur á þessari leiktíð aðeins leikið einn leik með Reading og var það í Deildarbikarnum á þriðjudag þegar Reading mætti Swansea.

Það var þó ekki draumabyrjun hans á tímabilinu því að Sodje sem er 28 ára gamall fékk að líta rauða spjaldið í leiknum eftir að hafa fengið að líta tvö gul spjöld.

Fyrr í morgun fékk Alan Pardew, Danny Mills á frá Manchester City. ,,Ástæðan fyrir því að við fengum Danny Mills til félagsins er sú að við teljum okkur vanta skipulag baka til á köflum, smá reynslu. Við þurftum einnig einhvern sem að veit um hvað deildin snýst um," sagði Alan Pardew stjóri Charlton.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.