Fotbolti.net
31.08.07 - 16:22
Magnús Már Einarsson

Kjartan Henry til Åtvidabergs FF (Staðfest)

Kjartan Henry til Åtvidabergs FF (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Guðmundur Svansson

Framherjinn Kjartan Henry Finnbogason hefur gert samning við sænska 1.deildarfélagið Åtvidabergs FF út tímabilið þar í landi en því lýkur 27.október næstkomandi.
Kjartan Henry sem er 21 árs gamall yfirgaf Glasgow Celtic í sumar en hann hafði verið í tvö og hálft ár hjá skoska félaginu.

Kjartan fór til nokkurra félaga á reynslu í sumar, meðal annars Brann, Gautaborg og Bristol í Englandi en nú hefur hann samið við Åtvidabergs FF.

Åtvidabergs FF er í fjórða sæti í sænsku fyrstu deildinni tveimur stigum á eftir Ljungilske sem er í þriðja sætinu.

Þessi lið mætast á sunnudaginn en forráðamenn Åtvidabergs FF búast við að Kjartan Henry spili ekki þar heldur að hann muni leika sinn fyrsta leik gegn Bunkeflo 13.september.

Heimild: Heimasíða Åtvidabergs FF

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.