Fotbolti.net
31.08.07 - 21:03
Magnús Már Einarsson

Diop til Portsmouth (Staðfest)

Diop til Portsmouth (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Portsmouth hefur keypt miðjumanninn Papa Bouba Diop frá Fulham fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 29 ára gamli Senegali hafði fengið leyfi til að yfirgefa Fulham en hann vildi fá nýja áskorun.

Nokkur félög voru á eftir Bouba Diop og var Newcastle eitt þeirra sem var sagt vera á eftir honum.

Diop sem kom til Fulham frá Lens árið 2004 gerði nýjan samning við félagið á síðasta ári en nú hefur hann gengið til liðs við Portsmouth.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.