31.08.07 - 21:30
Tómas Þór Þórðarson
Landsliðsmaður Togo til Aston Villa (Staðfest)

O'Neill er nú búinn að fá til sín sex leikmenn fyrir tímabilið.

Mynd: Getty Images

Aston Villa sem voru nokkuð rólegir á leikmannamarkaðinum framan af fengu til liðs við sig sinn þriðja mann á tveimur dögum nú undir kvöldið. Sá er landsliðsmaður Togo og heitir Moustapha Salifou en hann kemur til Villa fyrir óuppgefna upphæð.
Þessi 24 ára leikmaður sem lék alla leiki Togo í úrslitakeppni heimsmeistaramótins 2006 kemur frá svissneska liðinu FC Wil og skrifar undir eins árs samning.
,,Hann hefur mikinn metnað fyrir því að standa sig vel í ensku úrvalsdeildinni og gæti endað með því að verða frábær kaup," sagði Martin O'Neill um leikmanninn.
Með þessum kaupum hefur Randy Lerner sem keypti Villa liðið í fyrra núna eytt yfir 40 milljónum punda í leikmannakaup. Á síðustu tveimur dögum hafa þeir fengið til sín Zat Knight frá Fulham, Curtis Davies frá WBA og nú Salifou.

Heimild: Sky