Fotbolti.net
31.08.07 - 23:22
Magnús Már Einarsson

Paul Dickov til Crystal Palace á láni (Staðfest)

Paul Dickov til Crystal Palace á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Crystal Palace hefur fengið Paul Dickov framherja Manchester City að láni en samningurinn gildir þar til í lok desember.
Dickov kemur til Palace til að fylla skarð Shefki Kuqi sem er farinn til Fulham á láni en hann mun þó ekki fá leikheimild í tæka tíð fyrir leik Palace gegn Charlton um helgina.

Divckov gekk aftur til liðs við Manchester City í maí árið 2006 eftir að hafa leikið með Blackburn Rovers en hann hafði áður yfirgefið City og farið til Leicester árið 2001.

Þessi skoski leikmaður var í byrjunarliði í níu leikjum á síðustu leiktíð en náði ekki að skora.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.