Fotbolti.net
31.08.07 - 23:31
Magnús Már Einarsson

Solano til West Ham (Staðfest)

Solano til West Ham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Ham náði að krækja í Nolberto Solano frítt frá Newcastle rétt áður en að félagaskiptaglugginn lokaði á miðnætti á Englandi eða klukkan 23:00 að íslenskum tíma.
Alan Curbishley stjóri West Ham vildi reyna að fá miðjumann áður en að félagaskiptaglugginn lokaði eftir að Kieron Dyer fótbrotnaði í vikunni.

Honum tókst það með því að fá Solano sem var nýlega kallaður að nýju í landslið Perú eftir tveggja ára fjarveru.

Fyrr í sumar sagði Sam Allardyce stjóri Newcastle að hann hefði engan áhuga á að láta Solano fara en það breyttist og hefur þessi 32 ára leikmaður nú gengið til liðs við West Ham.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.