Fotbolti.net
31.08.09 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Paul McShane til Hull City (Staðfest)

Paul McShane

Paul McShane

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Hull City hefur fengið varnarmanninn Paul McShane til sín frá Sunderland.
McShane, sem er 23 ára gamall gerir fjögurra ára samning við Hull, en hann eyddi síðasta tímabili á láni þar undir stjórn Phil Brown, er Hull lék í fyrsta sinn í ensku úrvalsdeildinni.

Hann gefur ekki spilað einn leik fyrir Sunderland síðan hann kom af láninu frá Hull og ákvað því að ganga til liðs við sitt gamla félag, en hann kom til Sunderland á sínum tíma frá West Bromwich Albion.

Það þykir þó vert að tilkynna að þetta er ekki hinn sá og sami Paul McShane sem spilar fyrir Fram í Pepsi-deild karla, og eru þeir ekki tengdir á neinn hát þar sem þessi nýji leikmaður Hull er írskur, en Frammarinn skoskur.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.