Fotbolti.net
31.08.09 - 13:02
Gunnar Gunnarsson

Dmytro Chygrynskiy til Barcelona (Staðfest)

Dmytro Chygrynskiy fagnar hér þegar Shakhtar Donetsk landaði sigri á Werder Bremen í úrslitaleik Evrópukeppni félagsliða fyrr á árinu.

Dmytro Chygrynskiy fagnar hér þegar Shakhtar Donetsk landaði sigri á Werder Bremen í úrslitaleik Evrópukeppni félagsliða fyrr á árinu.

Canon

Mynd: Getty Images

Evrópumeistarar, Barcelona hafa styrkt leikmannahóp sinn enn frekar fyrir komandi átök með því að kaupa Dmytro Chygrynskiy 22 ára gamlan miðvörð frá Shakhtar Donetsk. Talið er líklegt að kaupverðið sé í kringum 25 milljónir evra.
Þessi kraftmikli varnarmaður samþykkti að ganga til liðs við Barcelona áður en kom að síðasta leik sínum fyrir úkraínska félagið en sá leikur var einmitt gegn Katalóníuliðinu á föstudagskvöldið þegar félögin mættust í leik um evrópska ofurbikarinn í Mónakó.

,,Ég er mjög heppinn að ganga til liðs við Barcelona. Ég vonast til að geta orðið mikilvægur hlekkur í þessu frábæra liði,\" sagði Chygrynskiy við spænska fjölmiðla.

,,Ég talaði við Guardiola eftir úrslitaleikinn og hann vildi að ég byrjaði eins fljótt og mögulegt væri,\" bætti Dmytro Chygrynskiy við.

Chygrynskiy talaði um að óvænt tap Shakhtar gegn rúmenska liðinu Timisoara í forkeppni Meistaradeildar Evrópu hefði hjálpað til við að gera félagsskiptin til Barcelona möguleg.

,,Það auðveldaði allt samningaferlið. Forráðamenn Shakhtar töldu afar líklegt að liðið myndi spila í Meistaradeildinni. En þetta var erfið ákvörðun því Shakhtar spilar á nýjum velli og forseti félagsins vildi ólmur halda mér,\" sagði Chygrynskiy að lokum.

Heimild: Goal.com

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.