Fotbolti.net
31.08.09 - 13:00
Magnús Már Einarsson

Real Madrid kaupir ungan framherja frá Celta Vigo (Staðfest)

Real Madrid kaupir ungan framherja frá Celta Vigo (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Real Madrid hefur keypt framherjann Jose Luis Mato frá Celta Vigo.
Þessi 19 ára gamli leikmaður er í U21 árs landsliði Spánverja en hann er þekktur undir nafninu Joselu.

Joselu mun leika með Celta Vigo á láni á þessari leiktíð en Real Madrid staðfesti þetta á heimasíðu sinni í dag.

Félagaskiptaglugginn á Spáni lokar á miðnætti og því er líklegt að Joselu sé síðasti leikmaðurinn sem Real Madrid fær til sín í sumar.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.