Fotbolti.net
31.08.09 - 15:19
Magnús Már Einarsson

Xisco og Henrique til Racing Santander (Staðfest)

Xisco.

Xisco.

Canon

Mynd: Getty Images

Racing Santander hefur fengið Xisco og Henrique á láni út tímabilið.
Xisco kemur frá Newcastle en þessi spænski framherji hefur átt við mikil meiðsli að stríða síðan að hann kom til Englands fyrir ári.

Þessi 23 ára gamli leikmaður fær núna tækifæri til að reyna sig að nýju í spænska boltanum en hann lék áður með Deportivo La Coruna.

Henrique er 21 árs gamall varnarmaður frá Brasilíu en hann hefur ekki verið í myndinni í aðalliði Barcelona.

Á síðustu leiktíð var Henrique í láni hjá Bayer Leverkusen í Þýskalandi.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.