31.08.09 - 14:16
Magnús Már Einarsson
Liverpool lánar Charles Itandje til Grikklands (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Gríska félagið Kavala FC hefur fengið markvörðinn Chales Itandje á láni frá Liverpool.
Itandje kom til Liverpool frá Lens fyrir tveimur árum en hann hefur alls leikið sjö leiki með enska félaginu síðan þá.
Þessi franski leikmaður er á eftir bæði Pepe Reina og Diego Cavilieri í röðinni hjá Liverpool.
Itandje hækkaði síðan ekki í áliti hjá stuðningsmönnum Liverpool þegar að hann þótti hegða sér illa á minningarathöfn um Hillsborough slysið í apríl síðastliðnum en hann var í kjölfarið settur í tveggja vikna bann hjá félaginu.

Heimild: Sky