Fotbolti.net
31.08.09 - 15:09
Magnús Már Einarsson

Miguel Angel Angulo til Sporting Lisabon (Staðfest)

Miguel Angel Angulo til Sporting Lisabon (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Migeul Angel Angulo hefur gert eins árs samning við Sporting Lisabon í Portúgal.
Þessi 32 ára gamli leikmaður hefur verið undanfarin tólf ár í herbúðum Valencia. Hann hefur núna fengið samningi sínum við spænska félagið rift og í kjölfarið skrifað undir hjá Sporting Lisabon.

Samband Angulo og Unai Emery þjálfara Valencia var ekki gott og það hefur verið ljóst í nokkrar vikur að leikmaðurinn væri á förum.

Auk Sporting þá sýndu Bolton Wanderers, Everton, Osasuna og Real Zaragoza áhuga á að fá Angulo í sínar raðir.

Heimild: AFP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.