Fotbolti.net
31.08.09 - 17:49
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

West Ham og Fiorentina skipta á Da Silva og Savio (Staðfest)

Savio Nsereko.

Savio Nsereko.

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham og Fiorentina hafa skipt á leikmönnum en enska félagið hefur fengið portúgalska varnarmanninn Manuel da Costa á meðan Savio Nsereko fór í hina áttina.
Da Costa lék með PSV Eindhoven áður en hann gekk í raðir Fiorentina. Hann lék einungis einn leik með Fiorentina en á síðustu leiktíð var hann í láni hjá Sampdoria.

Nsereko er tvítugur framherji en hann kom til West Ham á metfé í janúar síðastliðnum.

Þessi þýski unglingalandsliðsmaður er sagður hafa kostað West Ham um það bil níu milljónir punda en hann fann sig ekki á Englandi og mun núna halda til Ítalíu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.