31.08.09 - 20:03
Þórður Már Sigfússon
Eiður Smári til Mónakó (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Eiður Smári Guðjohnsen er genginn til liðs við franska liðið AS Mónakó frá Barcelona en frá þessu er greint á heimasíðu franska félagsins.
Hann gekkst undir læknisskoðun í dag og skrifaði hann undir tveggja ára samning í kjölfarið. Honum er ætlað það hlutverk að styrkja sóknarleik Mónakó og mun hann klæðast treyju númer 9.
Þar með er þriggja ára dvöl Eiðs Smára hjá stórliði Barcelona lokið en hann nældi sér m.a. í Evrópu- og Spánarmeistaratitil á þeim tíma.
Hann leikur sinn fyrsta leik fyrir Mónakó þegar liðið tekur á mót Paris St. Germain í frönsku úrvalsdeildinni þann 12. september næst komandi, en áður en af því verður mun hann leika með íslenska landsliðinu gegn Norðmönnum á Laugardalsvelli um næstu helgi.