31.08.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Rob Elliott til Newcastle (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Newcastle hefur keypt markvörðinn Rob Elliott frá Charlton Athletic.
Þessi 25 ára gamli leikmaður skrifaði undir fimm ára samning við Newcastle en hann er sjöundi leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar.
Elliott mun berjast við Tim Krul og Steve Harper um markvarðarstöðuna hjá Newcastle.

,,Þetta er stórt félag og stórt tækifæri fyrir mig að læra af tveimur af bestu markvörðunum í þessari deild,\" sagði Elliott.
Charlton kvartaði á dögunum yfir að Newcastle væri að ræða ólöglega við Elliott en á endanum náðu félögin saman.

Heimild: Sky