Fotbolti.net
31.08.11 - 08:27
Brynjar Ingi Erluson
Ítalska deildin

Eljero Elia til Juventus (Staðfest)

Eljero Elia er kominn til Juventus

Eljero Elia er kominn til Juventus

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska stórliðið Juventus hefur fest kaup á hollenska vængmanninum Eljero Elia frá HSV Hamburg í Þýskalandi.
Elia, sem er 24 ára gamall kemur til félagsins fyrir 9 milljónir evra, en hann gerði fjögurra ára samning við Juventus í dag eftir að hafa staðist læknisskoðun.

Hann hafði verið orðaður við mörg lið í sumar, en Alessandro Conte þjálfari Juventus sannfærði hann um að ganga til liðs við félagið.

,,Þetta er stærsta félagið á Ítalíu og það var mér mjög mikilvægt að Conte vildi fá mig til félagsins,\" sagði hann á heimasíðu Juventus.

Hann verður þriðji Hollendingurinn til þess að leika með liðinu, en hann er á eftir þeim Edwin van der Sar og Edgar Davids í röðinni.

Hann lék 60 leiki fyrir Hamburg og skoraði í þeim 8 mörk, en þar áður lék hann með Twente og Den Haag í Hollandi.

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.