Fotbolti.net
31.08.11 - 11:43
Brynjar Ingi Erluson

Real Madrid lánar Pedro Leon til Getafe (Staðfest)

Pedro Leon er kominn aftur til Getafe

Pedro Leon er kominn aftur til Getafe

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska stórliðið Real Madrid hefur lánað spænska kantmanninn Pedro Leon til Getafe út tímabilið.
Pedro Leon, sem er 24 ára gamall kom frá Getafe til Real Madrid fyrir síðasta tímabil en tókst einungis að leika 6 leiki fyrir félagið og var ekki inni í myndinni hjá Jose Mourinho þjálfara Real.

Real Madrid staðfesti þá í dag að félagið væri búið að lána leikmanninn til Getafe út tímabilið og að liðið geti keypt hann fyrir ákveðna upphæð á meðan hann er á lánssamningnum.

Hann á að baki 35 leiki með Getafe og hefur þá skorað 8 mörk. Þá hefur hann spilað sex landsleiki fyrir U21 landslið Spánverja og skorað eitt mark.

Heimild: Heimasíða Real Madrid

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.