Fotbolti.net
31.08.11 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Haraldur Freyr til Start (Staðfest)

Haraldur Freyr til Start (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Haraldur Freyr Guðmundsson, fyrirliði Keflvíkinga, hefur gengið til liðs við Start í Noregi.

Haraldur Freyr skrifaði í morgun undir samning sem gildir út þetta tímabil í Noregi.

Hann mun reyna að hjálpa Start í fallbaráttunni en liðið er sem stendur í næstneðsta sæti norsku úrvalsdeildarinnar, sex stigum frá öruggu sæti.
,,Ég er ánægður með þetta. Ég mun reyna að hjálpa Start í stöðunni sem félagið er í. Ég vonast til að koma með reynslu inn í hópinn og hjálpa þannig liðinu,\" sagði Haraldur Freyr.

Haraldur Freyr er uppalinn hjá Keflavík en hann kom aftur til félagsins í júlí 2009 eftir að hafa komið heim úr atvinnumennsku. Hann þekkir til í norska boltanum eftir að hafa leikið með Álasund frá 2005-2008.

Í sumar hefur Haraldur Freyr leikið alls fimmtán af sautján leikjum Keflvíkinga í Pepsi-deildinni.

Heimild: Heimasíða Start

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.