31.08.11 - 11:36
Brynjar Ingi Erluson
Joe Cole lánaður til Lille (Staðfest)

Joe Cole er farinn til Frakklands

Mynd:

Joe Cole er farinn til Frakklands

Mynd:
Franska knattspyrnuliðið Lille hefur fengið enska kantmanninn Joe Cole að láni út tímabilið frá Liverpool.
Cole, sem er 29 ára gamall var ekki í plönum Kenny Dalglish knattspyrnustjóra Liverpool og var honum því leyft að fara á láni til Lille.
Aston Villa reyndi að fá Cole í sínar raðir fyrir lok félagaskiptigluggans en tilboðið kom of seint en hann var þegar kominn til Frakklands þegar það barst.
Cole er áttundi leikmaðurinn sem Liverpool losar sig við í sumar, en þá er einnig búist við því að David N\'Gog og Christian Poulsen yfirgefi félagið fyrir lok gluggans.
Cole kom til LIverpool frá Chelsea síðasta sumar á frjálsri sölu, en þótti ekki standast þær væntingar sem gerðar voru til hans. Hann lék 32 leiki með Liverpool á síðasta tímabili og skoraði þrjú mörk.

Heimild: Heimasíða Liverpool FC