Fotbolti.net
31.08.11 - 11:40
Magnús Már Einarsson

Ingimundur Níels til Sandnes Ulf (Staðfest)

Ingimundur Níels til Sandnes Ulf (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Norska félagið Sandnes Ulf hefur fengið Ingimund Níels Óskarsson kantmann Fylkis á láni út tímabilið samkvæmt heimildum Fótbolta.net.
Steinþór Freyr Þorsteinsson leikur með Sandnes Ulf sem hefur fimm stiga forskot á toppi norsku fyrstu deildarinnar þegar níu umferðir eru eftir.

Ingimundur Níels kom til Fylkis frá KR árið 2008 og hefur síðan þá verið einn af öflugustu leikmönnum liðsins.

Í sumar hefur Ingimundur skorað sjö mörk í sextán leikjum í Pepsi-deildinni en í fyrr skoraði hann fimm mörk.

Þessi 25 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá Fjölni en hann fór þaðan til KR árið 2007.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.