Fotbolti.net
31.08.11 - 13:18
Brynjar Ingi Erluson

Scott Parker til Tottenham (Staðfest)

Scott Parker í leik með West Ham

Scott Parker í leik með West Ham

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Tottenham Hotspur hefur fengið til liðs við sig enska miðjumanninn Scott Parker frá West Ham United.
Parker, sem er 30 ára gamall hefur verið eftirsóttur í allt sumar eftir að West Ham féll niður um deild, en hann var valinn besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar í fyrra og því áhuginn mikill.

Hann þurfti reyndar á endanum að leggja inn beiðni um að fara frá félaginu og var það samþykkt.

Parker stóðst læknisskoðun hjá Tottenham í dag, en talið er að félagið borgi 6 milljónir punda fyrir hann.

Hann á að baki 129 leiki með West Ham og skoraði hann 12 mörk í þeim leikjum, en þá hefur hann einnig spilað með Chelsea, Newcastle, Norwich og Charlton á ferli sínum.

Þetta gæti því þýtt það að Wilson Palacios yfirgefur Tottenham síðar í dag, en það verður allt að koma í ljós enda nóg eftir af glugganum.

Heimild: ESPN

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.