Fotbolti.net
31.08.11 - 14:35
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

Diego Forlan og Mauro Zarate til Inter (Staðfest)

Forlan birti þessa mynd á Twitter síðu sinni fyrir stundu.

Forlan birti þessa mynd á Twitter síðu sinni fyrir stundu.

Canon

Mynd: Twitter

Inter styrkti fremstu víglínu sína í dag þegar félagið krækti í Diego Forlan og Mauro Zarate.
Forlan kemur frá Atletico Madrid en hann á að fylla skarð Samuel Eto´o sem fór til Anzhi Makhachkala í Rússlandi á dögunum.

Forlan, sem hefur raðað inn mörkunum á Spáni undanfarin ár, skrifaði undir tveggja ára samning við Inter.

Þessi 34 ára gamli leikmaður kom til Atletico Madrid frá Villareal árið 2007 en hann lék áður með Manchester United.

Zarate hefur ekki verið inni í myndinni hjá Edy Reja þjálfara Lazio og því fékk hann að fara til Inter á láni.

Inter borgar 2,7 milljónir punda til að fá þennan 24 ára gamla Argentínumann á láni og félagið getur síðan keypt hann á 15 milljónir evra næsta sumar.

Heimild: Football Italia

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.