31.08.11 - 15:45
Brynjar Ingi Erluson
Zdenek Grygera til Fulham (Staðfest)

Zdenek Grygera í leik með Juventus

Mynd: Getty Images

Zdenek Grygera í leik með Juventus

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Fulham hefur fengið tékkneska varnarmanninn Zdenek Grygera frá Juventus.
Grygera, sem er 31 árs gamall gerði eins árs samning við Fulham með möguleika á að framlengja samninginn um annað ár.
Hann hefur leikið með Juventus undanfarin fjögur ár, en hann á 87 leiki að baki með liðinu og skoraði 3 mörk í heildina. Hann lék áður með Ajax í Hollandi og Sparta Prague í heimalandi sínu.
Grygera á þá 53 landsleiki að baki með landsliði Tékklands og hefur hann skorað tvö mörk í þeim leikjum.