Fotbolti.net
31.08.11 - 15:45
Brynjar Ingi Erluson

David Bentley á láni til West Ham (Staðfest)

David Bentley

David Bentley

Canon

Mynd: Getty Images

West Ham United í fyrstu deildinni á Englandi hefur fengi David Bentley vængmann Tottenham Hotspur að láni út tímabilið.
Eins og var greint frá áðan þá hafði Sam Allardyce stjóri West Ham mikinn áhuga á að fá Bentley á láni út tímabilið og nú er búið að ganga frá skiptunum.

Bentley, sem er 27 ára gamall kemur því til með að fá mun meiri leiktíma hjá West Ham, en hann hefur ekki átt fast byrjunarliðssæti í Tottenham síðan hann kom til félagsins árið 2008.

Hann hefur þurft að berjast við Aaron Lennon um sætið, en Bentley var til að mynda lánaður til Birmingham á síðasta tímabili. Hann á að baki 76 leiki fyrir Tottenham og hefur skorað 7 mörk í þeim.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.