31.08.11 - 19:31
Hafliði Breiðfjörð
Guðjón Pétur Lýðsson til Helsingborg (Staðfest)

Guðjón Pétur í leik með Val í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Eva Björk Ægisdóttir

Guðjón Pétur Lýðsson miðjumaður Vals hefur verið lánaður til sænska félagsins Helsingborg en þetta staðfesti Friðjón R. Friðjónsson formaður knattspyrnudeildar félagsins við Fótbolta.net rétt í þessu.
Félagaskiptaglugginn í Evrópu er að loka nú á miðnætti og sænska félagið rétt náði að ganga frá samningum við Val nú á lokadeginum og Guðjón heldur því utan til nýrra liðsfélaga.
Hann missir því af síðustu fjórum umferðum Pepsi-deildarinnar með liði Vals sem er í fjórða sæti deildarinnar með 29 stig.
,,Þetta er algjör draumur í dós. Frá því að ég var tveggja ára hefur markmiðið að vera atvinnumaður í fótbolta. Ég tók gott skref með því að fara í Val og þetta er framhaldið af því,\" sagði Guðjón við Fótbolta.net í kvöld.
Guðjón Pétur gekk til liðs við Val frá Haukum síðasta sumar og hefur verið frábær. Hann er 23 ára gamall og hefur skorað 9 mörk í 19 leikjum í deild og bikar með Val í sumar. Auk Vals og Hauka hefur hann leikið með Breiðablik, Stjörnunni og Álftanes.
,,Menn hafa komist að samkomulagi um þenan lánssamningi til tveggja mánaða. Það eru engin ákvæði um sölu en ef þeim lýst vel á hann og ef einhverju öðru liði lýst vel á hann er hann í stærri glugga en Ísland er,\" sagði Friðjón formaður í samtali við Fótbolta.net í dag.
,,Þetta er fyrsta skrefið í ákveðnu samstarfi með Helsingborg. Freyr Alexandersson fer með honum út og ætlar að spjalla við þjálfara og við bindum ákveðnar vonir um að þetta verði fyrsta skrefið í að við myndum ákveðið samstarf við Helsingborg sem er áhugaverður klúbbur og í efsta sæti í Allsvenskan,\" bætti hann við.