Fotbolti.net
31.08.11 - 17:31
Hafliði Breiðfjörð

James Hurst til Blackpool (Staðfest)

James Hurst í leik með ÍBV.

James Hurst í leik með ÍBV.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

James Hurst fyrrverandi leikmaður ÍBV er genginn til liðs við enska Championship deildar liðið Blackpool á láni.
Hurst hefur verið á mála hjá WBA síðan hann fór frá ÍBV fyrir ári síðan en félagið hefur nú afráðið að lána hann út tímabilið sem er nýhafið á Englandi.

Hann er 19 ára gamall hægri bakvörður sem þótti frábær í Pepsi-deildlinni með ÍBV í fyrrasumar.

Hann var þá á láni þar frá Portsmouth þaðan sem hann fór til WBA á síðustu leiktíð.

WBA á samkvæmt samningnum við Blackpool rétt á að kalla hann til baka hvenær sem er.

Heimild: Vefur Blackpool

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.