31.08.11 - 18:45
Hafliði Breiðfjörð
Owen Hargreaves til Man City (Staðfest)

Owen Hargreaves er kominn til City.

Mynd: Getty Images

Owen Hargreaves er kominn til City.

Mynd: Getty Images
Owen Hargreaves er genginn til liðs við Manchester City frá erkiféndunum í Manchester United en þetta var staðfest á vef fyrrnefnda félagsins í dag.
Hargreaves kemur frítt til Manchester City eftir að hafa verið leystur undan samningi hjá United í lok síðustu leiktíðar. Hann hefur skrifað undir eins árs samning við City.
Hargreaves hefur mikið glímt við meiðsli undanfarin ár og lítið getað spilað með liði United.
Hann á að baki 42 landsleiki fyrir hönd Englands og hefur unnið fimm titla í Þýskalandi og á Englandi. Hann var valinn besti leikmaður enska landsliðsins árið 2006.
Hann er fæddur og uppalinn í Kanada en fór 16 ára gamall til Þýskalands eftir að Bayern Munchen hafði séð til hans. Hann vann Meistaradeildina með því liði.

Heimild: Sky