31.08.11 - 19:16
Hafliði Breiðfjörð
Maloney og Van Aanholt til Wigan (Staðfest)

Patrick Van Aaanholt er farinn á láni til Wigan.

Mynd: Getty Images

Wigan staðfesti nú í kvöld að félagið hafi gengið frá komu tveggja leikmanna til félagsins, Shaun Maloney sem er keyptur frá Celtic í Skotlandi og Patrick Van Aaanholt sem kemur á láni frá Chelsea.
Félagið vildi ekki gefa upp kaupverðið á Maloney sem er 28 ára gamall skoskur landsliðsmaður. Hann kom til Wigan í morgun og gekkst undir læknisskoðun og hefur nú skrifað undir tveggja ára samning við félagið með möguleika á framlengingu þriðja árið.
Patrick Van Aanholt er 21 árs gamall hollenskur varnarmaður sem kemur á láni frá Chelsea út þessa leiktíð. Aanholt sem er vinstri bakvörður kom til Chelsea frá PSV Eindhoven og hefur leikið tvo leiki fyrir liðið í ensku úrvalsdeildinni auk sex bikarleikja.
Hann skoraði fyrir Chelsea gegn Newcastle í Carling Cup en hefur einnig verið á láni áður hjá Coventry, Newcastle og Leicester og spilað næstum 40 leiki í Championship deildinni.
Wigan hefur þá fengið þrjá leikmenn á sólarhring því Albert Crusat kom til þeirra í gær.

Heimild: Vefur Wigan