31.08.11 - 19:22
Ívan Guðjón Baldursson
Fernando Gago lánaður til Roma (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Fernando Gago, 25 ára gamall miðjumaður frá Argentínu, er búinn að skrifa undir lánssamning við AS Roma á Ítalíu.
Gago er leikmaður Real Madrid en hann hefur ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliðinu þar á bæ þrátt fyrir að hafa komið við sögu í 92 leikjum á fjórum árum hjá Real.

Það er klásúla í lánssamningnum sem gerir Roma kleift að kaupa leikmanninn á 5.3 milljónir punda eftir tímabilið.
Gago hefur átt í baráttu um byrjunarliðssæti við leikmenn á borð við Xabi Alonso, Sami Khedira, Esteban Granero og Lassana Diarra á síðustu árum.

Heimild: Sky Sports