Fotbolti.net
31.08.11 - 19:28
Magnús Már Einarsson

David Ngog til Bolton (Staðfest)

David Ngog til Bolton (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Bolton Wanderers hefur fest kaup á framherjanum David Ngog frá Liverpool.

Owen Coyle stjóri Bolton hefur verið í leit að framherja eftir að hafa misst Johan Elmander og Daniel Sturridge í sumar.
Talið er að Bolton hafi borgað fjórar milljónir punda fyrir þennan 21 árs gamla Frakka.

Blackburn hafði einnig sýnt Ngog áhuga auk þess sem Sunderland reyndi að krækja í hann fyrr í sumar.

Ngog kom til Liverpool frá PSG árið 2008 en hann lék þrjú heil tímabil með enska liðinu.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.