31.08.11 - 19:30
Ívan Guðjón Baldursson
Miralem Pjanic kominn til Roma (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Franska félagið Olympique Lyon er búið að staðfesta brottför Miralem Pjanic frá félaginu til AS Roma á Ítalíu.
Pjanic er miðjumaður og bosnískur landsliðsmaður en verðið sem Roma greiðir fyrir hann er í kringum 8.8 milljónir punda. Pjanic er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið.
Pjanic er miðjumaður og bosnískur landsliðsmaður en verðið sem Roma greiðir fyrir hann er í kringum 8.8 milljónir punda. Pjanic er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið.
Pjanic er aðeins 21. árs gamall og hefur nú bæst við langan innkaupalista Roma í sumar þar sem menn á borð við Simon Kjær, Pablo Osvaldo og Fernando Gago eru búnir að skrifa undir.
Lazio og Tottenham voru einnig orðuð við Pjanic en hann er talinn vera gríðarlega efnilegur leikmaður.
Lazio og Tottenham voru einnig orðuð við Pjanic en hann er talinn vera gríðarlega efnilegur leikmaður.
Heimild: Sky Sports
