31.08.11 - 19:44
Ívan Guðjón Baldursson
Diego lánaður til Atletico Madrid (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brasilíski miðjumaðurinn Diego hefur verið lánaður til Atletico Madrid og mun hann vera hjá félaginu þar til í júní 2012, samkvæmt opinberri vefsíðu VFL Wolfsburg.
Diego lék gríðarlega vel í þrjú tímabil með Werder Bremen í Þýskalandi og var að lokum seldur til Juventus fyrir 25 milljónir evra en tímabili seinna var hann seldur fyrir 15 milljónir evra til Wolfsburg.

Lokadagar síðasta tímabils voru mjög erfiðir fyrir Diego sem var á bekknum í síðasta deildarleik Wolfsburg. Wolfsburg þurfti þá sigur til að bjarga sér frá falli en Diego fór af bekknum og yfirgaf leikvanginn og var sektaður um hálfa milljón evra af félaginu fyrir gjörðir sínar
Líklegt er að Diego muni taka stöðu Elias á miðju Atletico en félagið var að selja Elias til Sporting CP í Portúgal, sem greiddi metfé fyrir leikmanninn.
Líklegt er að Diego muni taka stöðu Elias á miðju Atletico en félagið var að selja Elias til Sporting CP í Portúgal, sem greiddi metfé fyrir leikmanninn.