31.08.11 - 19:42
Hafliði Breiðfjörð
Gael Kakuta til Bolton (Staðfest)

Chelsea hefur lánað Gael Kakuta til Bolton.

Mynd: Getty Images

Chelsea tilkynnti á vef sínum í kvöld að Gael Kakuta sé genginn til liðs við Bolton Wanderers á láni til 1. janúar.
Frakkinn hafði verið á láni hjá Fulham í nokkra mánuði af síðustu leiktíð þegar Mark Hughes stýrði liðinu.
Hann spilaði þá sjö leiki og skoraði sitt fyrsta meistaraflokksmark í 3-0 sigri á Sunderland í apríl.
Hann hafði samið til langs tíma hjá Chelsea í desember 2010 og er samningsbundinn félaginu til ársins 2015.
Hann hefur leikið 16 leiki fyrir Chelsea síðan hann lék sinn fyrsta leik með félaginu í 4-0 sigri á Wolves í nóvember 2009.

Heimild: Sky