31.08.11 - 20:00
Ívan Guðjón Baldursson
Elias til Sporting CP fyrir metfé (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Portúgalska stórliðið Sporting CP er búið að staðfesta komu brasilíska miðjumannsins Elias en félagið er að greiða metfé fyrir leikmanninn.
Elias var keyptur til Atletico Madrid í desember og það tók hann ekki langan tíma að koma sér í byrjunarliðið. Nú hefur Atletico Madrid þó fengið Diego í sínar raðir og mun hann væntanlega taka við af Elias.

Elias kostaði 7.8 milljónir punda og er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Sporting. Elias er 16. leikmaðurinn sem kemur til Sporting í sumar og er partur af endurbyggingu félagsins samkvæmt talsmanni Sporting.