31.08.11 - 20:20
Ívan Guðjón Baldursson
Juray Kucka fer til Inter í janúar (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Inter og Genoa eru búin að staðfesta að þau hafa skipt á leikmönnum sínum Emiliano Viviano og Juray Kucka, en báðir leikmenn verða eftir hjá félögum sínum í hálft ár á láni.
Kucka kom til Genoa í janúar frá Sparta Prag en hann er nú búinn að skrifa undir fimm ára samning við Inter. Kucka er 24 ára gamall miðjumaður frá Slóvakíu.
Kucka kom til Genoa í janúar frá Sparta Prag en hann er nú búinn að skrifa undir fimm ára samning við Inter. Kucka er 24 ára gamall miðjumaður frá Slóvakíu.
Viviano er 25 ára gamall markvörður og er af mörgum talinn vera framtíðarlandsliðsmarkvörður ítalska A-landsliðsins og hann mun fara til Genoa í janúar þegar hann verður búinn að ná sér af meiðslum sem hafa verið að hrjá hann í sumar.
Heimild: Sky Sports
