31.08.11 - 20:34
Ívan Guðjón Baldursson
Jermaine Beckford til Leicester City (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Jermaine Beckford er kominn til Leicester City samkvæmt fréttasíðu Sky Sports. Kaupverðið er talið vera um 3 milljónir punda og er Beckford einn af mörgum kaupum Leicester í sumar.
Sven Goran Eriksson, knattspyrnustjóri Leicester, er einnig að vinna að því að bæta tilboð sitt í sóknarmann Rangers, Nikica Jelavic, þar sem 6.5 milljóna tilboði í hann var hafnað fyrr í sumar.
Sven Goran Eriksson, knattspyrnustjóri Leicester, er einnig að vinna að því að bæta tilboð sitt í sóknarmann Rangers, Nikica Jelavic, þar sem 6.5 milljóna tilboði í hann var hafnað fyrr í sumar.
Allt virðist vera að detta í sundur hjá Everton sem gæti einnig verið að missa Mikel Arteta til Arsenal þrátt fyrir að hafa neitað 10 milljóna punda boði í leikmanninn.
Heimild: Sky Sports
