Fotbolti.net
31.08.11 - 20:44
Hafliði Breiðfjörð

Marek Cech til Trabzonspor (Staðfest)

Marek Cech er farinn til Tyrklands.

Marek Cech er farinn til Tyrklands.

Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið WBA staðfesti í kvöld að Marek Cech hafi verið seldur til tyrkneska félagsins Trabzonspor en kaupverðið var ekki gefið upp.
Cech er 28 ára gamall. Hann hefur verið í þrjú ár hjá WBA og lék á þeim 80 leiki fyrir félagið.

Slóvakinn hafði misst sæti sitt í liði WBA á síðustu leiktíð til Nicky Shorey og hafði aðeins einu sinni komið við sögu á þessari.

Hann vildi fá að spila meira og ákvað því að söðla um. Hann hefur verið með landsliði en fékk leyfi til að fjúga til Tyrklands til að ganga frá samningum.

Hann er annar leikmaðurinn sem WBA lætur frá sér til Tyrklands í sumar því áður fór Scott Carson til Bursaspor.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.