31.08.11 - 20:54
Hafliði Breiðfjörð
Per Mertesacker til Arsenal (Staðfest)

Per Mertesacker er kominn til Arsenal.

Mynd: Getty Images

Per Mertesacker er kominn til Arsenal.

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur staðfest komu miðvarðarins Per frá Werder Bremen en félagið virðist á útopnu við að reyna að styrkja leikmannahóp sinn verulega áður en félagaskiptaglugginn lokar eftir rúmlega klukkustund.
Mertesecker gerir fjögurra ára samning við Arsenal en han kemur frá Werder Bremen þar sem hann var fyrirliði og lykilmaður í liðinu. Hann lék fimm tímabil með Werder Bremen þangað sem hann kom frá Hannover. Hann á að baki 221 meistaraflokksleik og hefur skorað 19 mörk.
Hann er þýskur landsliðsmaður sem hefur leikið 75 landsleiki fyrir þjóð sína og á því leikur enginn vafi að hann mun styrkja vörn Arsenal liðsins þar sem hann mun klæðast treyju númer 4.
Talið er að kaupverðið sé 9 milljónir punda. Hann er þriðji leikmaðurinn sem kemur til félagsins á sólarhring, áður komu Santos og Park Chu Young. Þá er félagið einnig talið í viðræðum um Yossi Benayoun og Mikel Arteta.
,,Ég átti frábæra tíma hjá SV Werder Bremen og er félaginu þakklátur. Með því að flytja til London upplifi ég draum og tek nýtt skref á ferlium. Úrvalsdeildin hefur alltaf verið mikil áskorun fyrir mér,\" sagði hann á vef Arsenal.

Heimild: Vefur Arsenal