Fotbolti.net
31.08.11 - 21:28
Hafliði Breiðfjörð

Benayoun staðfestir að hann fari til Arsenal (Staðfest)

Benayoun er farinn til Arsenal.

Benayoun er farinn til Arsenal.

Canon

Mynd: Getty Images

Yossi Benayoun hefur staðfest að hann gangi til liðs við Arsenal frá Chelsea en þetta staðfesti hann á Twitter síðu sinni.
,,Ég sem við Arsenal, mjög ánægður og spenntur fyrir því,\" sagði Ísraelsmaðurinn á Twitter.

,,En núna er hugur minn að leiknum gegn Grikklandi á föstudag. Takk fyrir stuðninginn.\"

Benayoun hafði einnig verið orðaður við sitt gamla félag Liverpool í dag en í kvöld benti allt til þess að hann færi til Arsenal.

Það hefur nú verið staðfest af honum sjálfum á Twitter og ljóst að Arsenal styrkir sig mikið þennan sólarhringinn. Enn er þó óvissa með hvort Mikel Arteta komi þangað frá Everton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.